
Jorika Trundova
Verkefnastjóri og leiðbeinandi
Jorika er með BA gráðu í sálfræði og sérkennslufræðum og MA í hnattrænum fræðum, fólksflutningum og fjölmenningu (e. Global Studies with Focus on Migration and Multicultural Society). Í námi sínu rannsakaði Jorika félagsstarf fyrir umsækjendur um vernd á Íslandi, en í sálfræðináminu í Prag vann hún sem aðstoðarmaður við rannsókn á kynjamisrétti. Jorika hefur reynslu af því að vinna með fötluðum einstaklingum, bæði fullorðnum og börnum, meðal annars sem aðstoðarmaður barna með sérþarfir í frístundarheimili Víðistaðaskóla. Auk þess hefur Jorika hefur hlotið sérstaka þjálfun í viðbrögðum við krísum fyrir geðheilsuteymi (e. Crisis Intervention Training).

Natalia Duarte Jeremías
Leiðbeinandi
Natalia er víóluleikari og tónlistarkennari frá Kosta Ríka, búsett í Reykjavík. Í starfi sínu nýtir Natalia tónlist sem tæki til að efla inngildingu, félagsleg tengsl og vellíðan. Hún hefur stýrt þátttökumiðuðum tónlistarverkefnum fyrir ung börn og fjölmenningarlegar fjölskyldur í samstarfi við Norræna húsið og Tónagull.
Natalia hefur unnið með tónlistarskólum, menningarfélögum og sjálfseignarstofnunum í Kosta Ríka, á Spáni, á Ítalíu og á Íslandi. Frá febrúar 2025 hefur hún einnig starfað með GETU-samtökum, þar sem hún leiðir tónlistarsmiðjur og tekur þátt í alþjóðlegum foreldrafundum.
Natalia stundar nú doktorsnám við Háskóla Íslands.
Samhliða kennslu- og fræðslustarfi sínu nýtur Natalia þess að koma fram sem hljómsveitar- og kammermúsíkant, bæði á Íslandi og erlendis.

Hugo Llanes
Leiðbeinandi
Hugo er fæddur í Mexikó en býr og starfar í Reykjavík. Hann er með meistaragráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands og BA gráðu í sjónlistum frá Universidad Veracruzana í Mexíkó. Hugo hefur sýnt víða og verið virkur þáttakandi í frumkvæðum sem miða að inngildingu minnihlutahópa í íslenska myndlistarsenu, svo sem verkefnið Komd’inn, félagasamtökunum Artists in Iceland Action Visa Group og GETU – Samtökum.

Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir
Framkvæmdastjóri
Ingunn Fjóla er með BA og MA gráðu í myndlist, auk BA gráðu í listasögu. Hún er starfandi myndlistarmaður og listfræðingur með mikla reynslu af myndlistarkennslu fyrir börn og fullorðna. Undanfarin ár hefur Ingunn Fjóla unnið sem stundakennari við Listaháskóla Íslands og Myndlistaskólann í Reykjavík samhliða eigin listsköpun. Hún hefur starfað við leiðsagnir og sem verkefnastjóri fræðslu- og miðlunar hjá Listasafni Reykjavíkur, en einnig gegnt starfi verkefnastjóra myndlistardeildar Listaháskóla Íslands og framkvæmdastjóra Nýlistasafnsins.
Í gegnum tíðina hefur Ingunn sinnt ýmsum trúnaðarstörfum, stýrt verkefnum, sýningum og menningarviðburðum.