17. júní

Fjölmenningarleg hátíðarhöld í Hafnarfirði

Frá árinu 2022 hafa GETA – Samtök staðið fyrir árlegri fjölmenningarlegri hátíð í miðbæ Hafnarfjarðar á Þjóðhátiðardaginn 17. júní. Hátíðin hefur þróast í að vera vinsæll hluti af hátíðarhöldum bæjarins þar sem fjölbreyttur hópur íbúa og gesta kemur saman til að fagna bæði íslenskri þjóðmenningu og fjölmenningu samfélagsins. Hátíðin samanstendur af fjöltyngdri fánasmiðju, fjölþjóðlegu matarsmakki, tónlist og dansi.

Í Hafnarborg geta börn og fullorðnir búið til sína eigin þjóðhátíðarfána eða hannað persónulega fána með fjölbreyttum efniviði og stuðningi leiðbeinenda á fleiri en einu tungumáli.

Fyrir utan Hafnarborg er boðið upp á ókeypis matarsmakk frá löndum eins og Venesúela, Úkraínu, Nígeríu, Gana, Palestínu, Tyrklandi og Sýrlandi. Lifandi tónlist, dans og trommusláttur skapa hlýja og líflega stemningu á svæðinu.

Markmið hátíðarinnar er að skapa aðgengilegt og inngildandi rými þar sem fólk af ólíkum uppruna, tungumálum og aldri getur hist á jafningjagrundvelli og tekið þátt í þjóðhátíðardeginum sem sameiginlegri upplifun. Með skapandi þátttöku, samveru og matarmenningu leggur hátíðin áherslu á virðingu, fjölbreytileika og jákvæða fjölmenningu í Hafnarfirði.

Hátíðin er samstarfsverkefni GETU – Samtaka og Hafnarborgar og er styrkt af Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar.